Hleðsluskólinn

Hleðsluskólinn

 

 

 

 

 

 

 

Hleðslunámskeið 2026

2 – 3. maí – 9 -10. maí, sérnámskeið í grjóthleðslu

23 – 24. maí, – hefðbundið alhliða námskeið  

30 – 31. maí, – hefðbundið alhliða námskeið

8 – 9. ágúst,

15 – 16. ágúst

Torfdagurinn 22. ágúst.

 *Hleðslunámskeið í sept/okt auglýst síðar.

 

Sérnámskeið í grjóthleðslu

🏛 🍀 🦉

Sérnámskeið í grjóthleðslu:  2 – 3. maí – 9 – 10. maí

Íslendingar hafa í gegnum aldirnar byggt grunneiningar húsa, veggi og ytra byrði þaka úr efnivið sem fáanlegur er úr nánasta umhverfi. Smám saman myndast haldbær þekking á því hvað telst vænlegur efniviður. Á sum svæðum landsins hagar þannig til að nóg framboð er af torfi en grjót af skornum skammti, annars staðar er byggingatorf af skornum skammti en grjót ríkjandi byggingarefni. Í vinnu með torf og grjót kynslóð fram af kynslóð skapast hefðir og viðmið, hvort heldur um er að ræða vald og skilning á einstökum handverksþáttum, notagildi, samhengi við umhverfi eða fagurfræði. Grjót er ekki sama og grjót. Grjót er mjög mismunandi eftir landsvæðum með tilliti til útlits og eignleika þegar kemur að hleðslu veggja. Á sumum svæðum er torftekja mjög rýr, vegna skorts á heppilegu votlendi með nausynlegum lykilplöntum, annars staðar er heppilegt og fallegt hleðslugrjót innan seilingar. Með tilliti til aðstæðna skapast hefðir, lausnir og markmið.

Efra-Seli fyrir innan Stokkseyri í Árborgarhreppi er að finna einstaklega vel lagað grjót eða hraunstuðla sem brotnað hafa upp við mjög faglegar jarðvegsframkvæmdir með tilliti til varðveislu á úrvals hleðslugrjóti. Fullyrða má að vandfundið sé meira magn af heppilegu og fallegu hleðslugrjóti og þarna er vafalaust að finna stærstu hraunhellur sem náðst hafa heilar úr jörðu í töluverðu magni.

Í þeim jarðvegsframkvæmdum sem hafa átt sér stað að Efra Seli, hefur öllu nothæfu hleðslu og skraut grjóti verið safnað saman og varðveitt til frekari fagurfræði nota, varðveislu og mögulegrar sölu síðar í valinn verkefni. 

Vegna þessara einstöku aðstæðna hefur Hleðlsluskólinn ákveðið að efna til yfirgripsmikils hleðslunámskeiðs þar sem farið verður kerfisbundið yfir óþrjótandi möguleika í veggjarhleðslu úr úrvals hleðslugrjóti.  Farið verður yfir alla grundvallarþætti sem lúta að handverki, hefðbundinni uppbyggingu og fagurfræði í gerð grjótveggja. Jafnframt veðrur farið yfir notkun og beitingu hefðbundinna verkfæra og notkun rafmagnsverkfæra þar sem viðeigandi er að beita þeim. Einnig verður farið yfir beitingu stórvirkra vinnuvéla við öflun á hleðsðlugrjóti þar sem aðstæður leifa.  Þessi þáttur verður í umsjón Hannesar Lárussonar ásamt aðkomu og innleggi frá nokkrum þaulreyndum hleðslumönnum; nánari dagskrá verður tilkynnt þegara nær dregur.

Á námskeiðinu verða jafnframt útskýrðir jarðfræðilegir þættir að baki hleðslugrjótinu á Efra Seli og öðru hefðbundnu hleðslugrjóti, tilbrigði og mismunur milli landshluta skilgreindur á jarðfræðilegum forsendum. Þessi þáttur verður í umsjón Árna Hjartarsonar jarðfræðings. Eiður Baldvinsson jarðvinnuverktaki og vélhleðslumaður mun útskýra og sýna beitingu stórvirkra vinnuvéla við öflun og meðferðar hleðslugrjóts við mismunandi aðstæður. Hann mun einnig sýna lítillega hver aðkoma/hjálp vinnuvéla gæti verið við mismunandi gerðir hleðsluverka, svo sem við að flokkagrjótið sem er komið á hleðslustað, finna hentuga botn og hornsteina, hjálpa til með það sem er mjög þungt, færa til og gera allt það sem handhleðslumaðurinn óskar aðstoðar tækisins við.

Ef tími verður til á námskeiðunum, þá væri hægt að sýna, stórgerðari vélhleðslu á mjög stóru grjóti, þar sem handverks hjálpin er fólgin í að velja grjótið, mæla, koma fyrir smærri steinum eftir þörfum, sem og loka frágangur á toppi hleðslunnar. Mikilvægt er þar sem vinnuvélar og handverksfólk vinnur saman að kenna fyrst ákveðnar grunn öryggisreglur, sem handverksfólkið verður að virða, svo vinnuvélar og handverk fari saman án áfalla.

Á þessu námskeiðum verður jafnframt farið yfir möguleika og aðferðafræði til að beita þessari ævafornu og einstöku hleðslutækni í samhengi við nútímabyggingar og vistvæna byggingaralist. Jafnframt verður leitast við að veita innsýn í hugmyndafræði og fagurfræði íslenskra torfbygginga stutt ítarlegu myndefni, fyrirlestrum og umræðum um íslenskan torfbæjararf í víðu samhengi.

Þetta námskeið stendur tvær helgar í röð við einstakar kjöraðstæður sem gefur svigrúm til að fara mjög ítarleg yfir handverk, vélakost og nauðsynlega þekkingu við hleðslu grjótveggja og mögulega nýtingu á umræddu hráefni. Megninhluti námskeiðsins mun fara fram að Eystra-Seli, en hluti námskeiðsins mun jafnframt fara fram að Laxabakka í Grímsnes og Grafningshreppi þar sem er að finna mjög gott hleðslugrjót, og verður þar farið í saumana á handverki við uppbyggingu og endurgerð hefðbundina veggja.  

Ef áhugi er á að læra notkun vinnuvéla við öflun hráefnis og notkun véla við hleðslu veggja úr stórgrýti er mögulegt að koma slíku námskeiði við í framhaldi af þessu námskeiði. Þetta námskeið yrði í umsjón Eiðs Baldvinssonar, sem hefur umtalsverða reynslu af notkun véla í öflun og meðferð á hleðslugrjóti, auk Hannesar Lárussonar og annarra fagmanna hvað snertir fagurfræðilegar útfærslur og möguleika hlaðinna veggja og notkunar á hleðslugrjóti í mismunandi samhengi.  

Hádegismatur og kaffi innifalið í gjaldi. Nauðsynleg verkfæri eru á staðnum. Gisting möguleg í torfbænum að Austur Meðalholtum eða tjaldi, eldunaraðstaða og/eða sameiginlegur kvöldmatur eftir atvikum. Þátttakendur skulu hafa með sér hlífðarfatnað, stígvél og vinnuhanska.

Námskeiðsgjald er 70.000kr.  🐝 🌞

Upplýsingar og skráning: s. 694 8108 / 696 5046 eða islenskibaerinn@gmail.com

www.facebook.com/islenskibaerinn      https://www.instagram.com/islenskibaerinn/

………….

23 – 24. maí, – hefðbundið alhliða námskeið  

30 – 31. maí, – hefðbundið alhliða námskeið

9 – 10. ágúst,

15 – 16. ágúst

🏛 🍀 🦉

Hér er um að ræða hefðbundin hleðslunámskeið þar sem megináhersla verður jöfnum höndum á torfhleðslu og grjóthleðslu. Námskeiðin standa frá 10 -18 laugardag og sunnudag. Meginhluti námskeiðanna fer fram á torfbænum að Austur-Meðalholtum í Flóahreppi og í nágrenni hans, þar sem gott byggingartorf er allt um liggjandi. En vettvangur grjóthleðsluhlutans verður fyrst og fremst að Laxabakka við Sog þar er að finna einstaklega fallegt hleðslugrjót. 

Á námskeiðunum verður farið yfir uppbyggingu veggja og húsþaka þar sem torf, grjót og mold er aðal efniviðurinn. Helstu hleðsluaðferðir verða útskýrðar og prófaðar. Allar megingerðir torfstungu og torfristu framkvæmdar með hefðbundnum verkfærum. Grundvallar atriði í grjóthleðslu og grjótvinnslu verða einnig skoðað og framkvæmdar. Þar sem við á verður nútímaverkfærum beit til að auka nákvæmni og flýta fyrir aðgerðum. Á þessum námskeiðum verður jafnframt farið yfir möguleika og aðferðafræði til að beita þessari ævafornu og einstöku hleðslutækni í samhengi við nútímabyggingar og vistvæna byggingaralist. Jafnframt verður leitast við að veita innsýn í hugmyndafræði og fagurfræði íslenskra torfbygginga stutt ítarlegu myndefni, fyrirlestrum og umræðum um íslenskan torfbæjararf í víðu samhengi.

Aðal leibeinandi á þessum námskeiðum er Hannes Lárusson ásamt útvöldum sérfræðingum þar sem við á.

Hádegismatur og kaffi innifalið í gjaldi. Nauðsynleg verkfæri eru á staðnum. Gisting möguleg í torfbænum eða tjaldi, eldunaraðstaða og/eða sameiginlegur kvöldmatur. Þátttakendur skulu hafa með sér hlífðarfatnað, stígvél og vinnuhanska.

Námskeiðsgjald er 35.000kr.  🐝 🌞

Upplýsingar og skráning: s. 694 8108 / 696 5046 eða islenskibaerinn@gmail.com

www.facebook.com/islenskibaerinn      https://www.instagram.com/islenskibaerinn/

***** ***** *****

Hleðsluskólinn og Íslenski bærinn standa reglulega fyrir fjölbreyttum námskeiðum í íslenskri hleðslutækni. Meginhluti námskeiðanna fer fram á torfbænum að Austur-Meðalholtum í Flóa og í nágrenni hans. Þessi námskeið eru ýmist auglýst sérstaklega eða sérsniðin* fyrir tiltekna hópa og fra að öllu jöfnu fram í maí/júni eða sept/okt.  Á námskeiðunum er aðal áherslan á hefðbundið íslenskt hleðsluhandverk og notkun hefðbundinna verkfæra, einnig er hugmyndafræði torfbygginga krufin og hugað að fagurfræðilegum sérkennum. Í húsakynnum Íslenska bæjarins er yfirgripsmikil sýning um íslenskan torfbæjar arf og þar er einnig að finna stórt safn torfskurðar- og torfstunguverkfæra.

*Hægt er að bregðast við eftirspurn eftir sérnámskeiðum ef fjöldi er 4+  

Nauðsynleg verkfæri eru á staðnum. Gisting möguleg í torfbænum eða tjaldi, eldunaraðstaða og/eða sameiginlegur kvöldmatur. Þátttakendur skulu hafa með sér hlífðarfatnað, stígvél og vinnuhanska.

Upplýsingar og skráning: s. 694 8108 / 696 5046 eða islenskibaerinn@gmail.com

***** ***** *****

 

 


Torfdagurinn Turfsday

22. ágúst, 2026

Torfdagurinn er hugsaður sem árleg hátíð og samráðsvettvangur áhugafólks fólks á öllum aldri um aldagamla íslenska hleðslutækni og byggingararf og jafnframt vettvangur til að kveikja áhuga og nýsköpun á þessu svið; – sem hefur óþrjótandi möguleika.

Hvergi í heiminum hefur torf, grjót og mold verið fyrirferðameira byggingarefni í mannvirkjum en á Íslandi, allt frá landnámi upp úr 850 og fram undir seinna stríð 1940. Ganga má að því vísu að sé eitthvað handverk og verklag stundað óslitið í jafn langan tíma náist hámarks árangur með tilliti til efnistilfinningar og möguleika í útfærslum; og smíði og aðlögun verkfæra að fyrirliggjandi hráefni. Afar mikilvægt er að þetta handverk hafi vettvang til að þrífast og þróast inn í framtíðina.

Á Torfdeginumm verður um að ræða margvíslega myndræna framsetningu á torf og grjótveggjum, greiningu á vistkerfi mýrarinnar með tilliti til fuglalífs og einkennandi gróðurs og jarðvegseiginleika. Einnig hönnun verkefna og “kubba” sem hæfa yngsta aldurhópnum til að byggja veggi og kveikja innsæi í aldagamlan arf. Þá verður boði up á “torfsúkkulaði” með kaffinu s. s. klömbruhnaus með matchatei þar sem grasið er.

Dagskrá Torfdagsins hefst kl. 14:00 23. ágúst í safnahúsi Íslenska bæjarins að Austur Meðalholtum. Einstakir liðir dagskárinnar verða auglýstir sérstaklega þegar nær dregur á FB- og Instagramsíðum Íslenska bæjarins. 


 

Myndlistarnámskeið

Myndlistarnámskeið fyrir börn og fullorða verður ekki haldin í sumar hjá Íslenska bænum á formlegum dagsetningum nema eftirspurn verði 4+ á  🤹🏻‍♀️ 🎨. Um verður að ræða þriggja tíma kennslu daglega ýmist 9-12 eða 13-16. 

Í gegnum virka þátttöku og frelsi til eigin uppgötvana verða notaðar aðferðir og eiginleikar myndlistar með áherslu á hefðbundna teikningu, mótun, myndbyggingu og myndgreiningu. Viðfangsefni verða sótt í náttúruna, myndheim samtímans, torfbæinn og verkmenningu fyrri tíma. Á námskeiðinu nálgast nemendurnir viðfangsefnin út frá sjónarhorni myndlistarinnar. Farið verður yfir vítt svið sjónlista; jöfnum höndum tvívíða og þrívíða myndgerð og tjáningu, umhverfisskynjun, listsögulegar vísanir, myndlestur og skoðun á samtímalist. Þeim verður gefið rými fyrir tilraunamennsku, samræðu, leik og heimspekilegar vangaveltur.

Markmið  námskeiðisins er að nemandinn kynnist ólíkum aðferðum við listsköpun, öðlist aukið öryggi og færni í teiknilist og lifandi áhuga á nærumhverfi sínu og menningu.

Kennarar eru Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir og Hannes Lárusson og sem bæði hafa langan myndlistarferil að baki og mikla reynsu af myndlistarkennslu á öllum skólastigum. Einnig munu landsþekktir myndlistarmenn/hönnuðir koma í heimsókn með innlegg.  Verð 28.000

Aðsetur íslenska bæjarins er að Austur-Meðalholtum í Flóahreppi, 60 km frá miðbæ Reykjavíkur, 7 km fyrir sunnan Selfoss.

Frekari upplýsingar og skráning í símum 6965046 og 7768708 islenskibaerinn@gmail.com

 

Sumarháskólinn 

Hleðslugerðir

Mýrin

Torfverkfæri