23. september 2017.
Bandaríska tímaritið National Geographic telur að eitt það áhugaverðasta sem hægt sé að gera á Norðurlöndunum sé að heimsækja Íslenska bæinn. Það þarf vart að taka það fram að við erum ákaflega stolt af þessu. // A visit to Íslenski bærinn / Turf house is one of 25 ways to Nordic Bliss, according to National Geographic - traveler issue for October/November 2017. We are of course very proud.
Sjá hér: / Read here:
6. júní 2016.
Nýverið birtist áhugavert viðtal í Morgunblaðinu við Hannes Lárusson um baðstofuna, og hversu merkilegt framlag hún er til þrívíðrar mótunar. Viðtalið má lesa með því að smella hér fyrir neðan:
Morgunblaðið 21. maí 2106
2. febrúar 2016.
Hér er góð grein með afar fallegum myndum frá Íslenska bænum. // Here is a great article with beautiful pictures from Turf House. "I spent way too much time looking in awe at all these old photos of long lost turf houses. It made me think of the old days when the major part of the Icelandic nation lived in turf houses, both rich and poor. And how this architectural heritage is disappearing." Lesa pistilinn
20. janúar 2016.
Íslenski bærinn auglýsir eftir ljósmyndum sem teknar hafa verið inni í baðstofum á Íslandi. Þessar ljósmyndir geta til dæmis leynst í myndaalbúmum. Myndirnar verða notaðar við rannsóknir, uppsetningu sýninga og í bókaskrif. Þeir sem finna ljósmyndir geta haft samband við Hannes Lárusson í síma 694 8108 eða sent tölvupóst á islenskibaerinn@islenskibaerinn.is. Hannes ræddi um myndasöfnunina, og Íslenska bæinn almennt, í viðtali á Rás 1 föstudaginn 15. janúar. Hlusta á viðtalið
Saga uppbyggingarinnar í máli og myndum ásamt bitastæðum atburðum og verkefnum framundan. Smellið á hanann hér fyrir neðan til að fræðast um uppbygginguna.
Eldri fréttir
Lesa má eldri fréttir á fréttasíðunni: